Þjónusta

Steggja- og gæsaakstur í drifti

Langar ykkur í ógleymanlega spennu- og adrenalínveislu fyrir steggjunina eða gæsakvöldið?
Leyfðu steggnum eða gæsinni að upplifa hvernig það er að drifta í alvöru driftbíl! Tilvalið fyrir hópa sem vilja gera eitthvað alveg tryllt, óvenjulegt og ógleymanlegt áður en gengið er í hið heilaga.

Fagmennska og færni

Við stýrið eru nokkrir af færustu og sigursælustu drift ökumönnum landsins. Með fjölmarga Íslandsmeistaratitla og áratuga reynslu að baki. Þegar þú mætir til okkar ertu að skella þér í ferð með þeim allra bestu í akstursíþróttum á Íslandi.

Verðskrá

Drift steggjun/gæsun kostar aðeins 75.000 kr.
Sendu okkur fyrirspurn hér fyrir neðan og við höfðum samband til að finna tíma sem hentar. Hvort sem það er fyrir steggjun, gæsun, sérstakt tilefni eða bara til að haka við á bucket listanum — Þá er þetta tækifæri til að upplifa íslenskt drift eins og það gerist best!
Klárt í slaginn? Bókaðu driftið í dag!

Hafa samband