Steggja- og gæsaakstur í drifti
Langar ykkur í ógleymanlega spennu- og adrenalínveislu fyrir steggjunina eða gæsakvöldið?
Leyfðu steggnum eða gæsinni að upplifa hvernig það er að drifta í alvöru driftbíl! Tilvalið fyrir hópa sem vilja gera eitthvað alveg tryllt, óvenjulegt og ógleymanlegt áður en gengið er í hið heilaga.
Fagmennska og færni
Við stýrið eru nokkrir af færustu og sigursælustu drift ökumönnum landsins. Með fjölmarga Íslandsmeistaratitla og áratuga reynslu að baki. Þegar þú mætir til okkar ertu að skella þér í ferð með þeim allra bestu í akstursíþróttum á Íslandi.